Hellú
Hæ hæNýtt blogg á nýjum stað!
123.is/pezan
enjoy
p.s. Erla ég er obboslega dugleg að taka bumbumyndir og fleira.... það er bara á sér síðu
Jæja ekki mikið að frétta af Beggunni, er bara að fara til Boston á fimmtudaginn ![]()
En hinsvegar að þá er ég loksins búin að setja inn þessar fáu myndir mínar frá árshátið Icelandair ![]()
....sem bæ ðö vei þýðir það að; Soffía mín nú þarft þú að fara að blogga muhahahahaha ![]()
Var díllinn ekki annars einhvern vegin svoleiðis? ![]()
Er kominn tími á að blogga? Tja það held ég nú.
Á laugardaginn fór ég í bæinn eftir vinnu með flestum í familíunni. Ferðinni var heitið í Borgarleikhúsið á Footloose sem var bara rosa gaman. Alltaf gaman að kíkja í leikhús.
Svo var sunnudagurinn aftur á móti ekki skemmtilegur, frekar léleg heilsan. En svona er það bara... ![]()
Í gær skaust ég svo í bæinn með mömmu þar mig vantaði kjól fyrir árshátíðna sem er á laugardaginn og afmælisgjöf fyrir Hrafntinnu dóttir Lindu vinkonu. Haldið að skvísan sé ekki bara orðin eins árs
unbelievable... Allavegana ég fann kjól, rosa flottur, enda kostaði hann sitt.
Og ég fann líka afmælisgjöf handa Hrafntinnu sem ég fór með til Lindu í gærkvöldi. Við vinkonurnar eyddum þarna slatta úr notalegri kvöldstund bara að spjalla og horfa með öðru auganu á þætti úr 1. þáttaröðinni af O.C.. ![]()
Svo í dag ætla ég að vera dugleg heima hjá mér, enda löngu kominn tími á það, ó já! ![]()
Kveð ykkur að sinni ![]()